miðvikudagur, janúar 26, 2005

Þorrablótið fór vel fram

Jæja, þá er þorrablótinu mikla lokið og að gekk eins og í sögu. Margir lögðu hönd á plóg með að gera þetta blót sem glæsilegast og var það svo sannarlega glæsilegt. Skemmtiatriðin voru frábær, Legó stóðu fyrir sínu og maturinn var æðislegur (allavega steikin og harðfiskurinn, en það var nú ekki mikið meira sem ég smakkaði 0 ).

Þorri sjálfur (konungur blótsins.............haha) var rosalega duglegur í undirbúningnum og var maturinn nánast allur klár strax á föstudaginn. Karlinn á hrós skilið fyrir að vera svona vel skipulagður í matarmálunum.

Þegar ákveðið var á föstudagskvöld að notast við leirtauið fína sem til er í íþróttahúsinu steig Baldur fram og bauðst til að taka þátt í uppvaskinu..... og vera snöggur að því. Það var hann svo sannarlega með dyggri aðstoð Gústa, Elvars og Ómars og voru þeir búnir að vaska upp alla diska og skálar fyrir miðnætti sem er bara þó nokkuð vel að verki staðið.

Hjörvar og Jónsi sáu svo um að allt færi vel fram og með þvílík heljarmenni í dyragættinni þorðu menn lítið að rífa sig.

Mig langar að þakka öllum strákunum sem lögðu á sig að koma norður og taka þátt í þessu með okkur. Þetta hefðu nú verið meira en að segja það ef við Baldur, Þorri og Elvar Árni hefðum þurft að sjá um þetta allt sjálfir. En með ykkar hjálp var þetta ekkert mál. Og án þess að gefa upp neinar tölur, þá sýnist okkur þetta hafa verið vel þess virði.

Elvar Már, Ágúst, Ómar, Óli, Hjörvar, Jónsi, Sigurbjörn, Þorri og Baldur!!!!! Takk fyrir góða helgi.

<>Kv. Hnikarr gjaldkeri

Ps. Ottó og Bjarki..............takk kærlega fyrir ykkar part, hann var frábær.

Ef einhverjir eiga myndir þá endilega setja þær inn eða senda á einhvern sem hefur aðgang til að setja þær inn.