fimmtudagur, janúar 20, 2005
Þorrablót
Ég vil benda diggum stuðningsmönnum á þorrablótið sem knattspyrnudeild Snartar heldur á Kópaskeri um helgina. Snörtur mun halda blótið í samstarfi við nýstofnað Skotfélag heima fyrir. Þessi stórviðburður kann að skýra deyfð yfir heimasíðum félagsins en ég get lofað því að það horfir til betri vegar.
Ég vil hvetja alla til að mæta á Þorrablótið sem haldið verður á laugardagskvöldið og styrkja þar með uppáhalds liðið ykkar að auki.
Kveðja,
Baldur
sunnudagur, janúar 16, 2005
2. stig í æfingaprógraminu
Vika 3 og 4.
Æfing 1:
Létt skokk í 10 mín, síðan 5 mín kafli þar sem þú eykur hraðann og leggur nokkuð hart að þér (álagskafli), síðan 10 mín létt skokk (eða ganga), annar 5 mín álagskafli og síðan 5 - 10 mín rólegt skokk (eða ganga í lokin). Þetta er ekki flókið, það hljóta allir að hafa aðgang að skeiðklukku í einhverju formi!!!!
(Hlaup með vaxandi hraða gefa geysimikinn styrk en er erfið æfing og nóg að hafa þannig æfingu einu sinni í viku. Þá er fyrsti þriðjungur hlaupsins rólegur, næsti þriðjungur á góðum jöfnum hraða (hraða sem þú finnur að þú getur haldið vel út hlaupið), en síðasta þriðjunginn reynir þú að hlaupa enn hraðar. Muna samt að skokka eða ganga rólega í lokin.)
Æfing 2:
35 - 45 mín útihlaup rólegt eða (ef þú finnur þig sterka og tilbúna í aðeins meira álag) vaxandi hraði.
Aukalega eins og í viku 1 og 2 þá eru það 100 kviðæfingar, 50 armbeygjur, 30 bakfettur og 40 magahopp(hoppa jafnfætis með hnén upp að bringu) sem þarf að gera eftir hvert útihlaup!!!!
Vika 3: Æfing þriðjud. og fimmtud. (17. og 20. jan)
Vika 4: Æfing þriðjud. og fimmtud. (24. og 27. jan)
MUNA AÐ COMMENTA OG SENDA MÉR ??????.
Kv. Atli Sveinn