fimmtudagur, janúar 06, 2005
Dúddavallarstjóri ráðinn
Auglýsingin um lausa stöðu vallarstjóra bar árangur nú um jólin. Einstaklingurinn sem kom að máli við mig milli jóla og nýárs hafði áður sýnt starfinu áhuga en bar það loks formlega upp í síðustu viku. Þar sem mér þótti (að öðrum stjórnarmeðlimum óspurðum) umsækjandinn hæfur til starfans þá tók ég mér það bessaleyfi að ráða hann á staðnum. Færðist hann við það mjög í aukanna og varð hinn kátasti.
Ég bar þetta undir stjórnina laust fyrir miðnættið í gær og lýsti hún því samhljóða yfir að Grétar Freyr Baldursson nyti fulls trausts til starfsins. Því stendur ráðning hans.
Meðal verkefna Grétars næsta sumar verður að...
- sjá um vökvun Dúddavallar
- hirða hann eftir þörfum
- sjá um merkingar á leikfangnum
- hafa umsjón yfir hornfánum og öðru slíku
- taka formlega á móti dómara við komu í hvern heimaleik
- og síðast en ekki síst að virkja aðra með sér til ofangreindra verkefna
Ég vil fyrir hönd stjórnarinnar bjóða Grétar Frey velkominn til starfa.
Baldur Guðmundsson
Formaður
mánudagur, janúar 03, 2005
Æfingaprógram
Jæja drengir, þá er alvaran að hefjast. Þjálfari vor hefur sett inn fyrsta æfingaprógrammið á blogsíðunni okkar (blog.central.is/snortur). Þetta fyrsta prógramm er eitthvað sem allir ættu að ráða við og ég hvet menn til að fylgja því frá fyrsta degi, þá verður þetta allt miklu auðveldara. Nú kemur í ljós hverjir ætla sér að spila eitthvað í sumar og hverjir ekki. Endilega kíkið á þetta. Sjálfur hyggst ég sýna gott fordæmi og byrja strax á fyrsta degi. Þeir sem hafa áhuga á að skokka með mér geta haft samband.
Kveðja Formaðurinn