fimmtudagur, janúar 06, 2005

Dúddavallarstjóri ráðinn

Auglýsingin um lausa stöðu vallarstjóra bar árangur nú um jólin. Einstaklingurinn sem kom að máli við mig milli jóla og nýárs hafði áður sýnt starfinu áhuga en bar það loks formlega upp í síðustu viku. Þar sem mér þótti (að öðrum stjórnarmeðlimum óspurðum) umsækjandinn hæfur til starfans þá tók ég mér það bessaleyfi að ráða hann á staðnum. Færðist hann við það mjög í aukanna og varð hinn kátasti.
Ég bar þetta undir stjórnina laust fyrir miðnættið í gær og lýsti hún því samhljóða yfir að Grétar Freyr Baldursson nyti fulls trausts til starfsins. Því stendur ráðning hans.

Meðal verkefna Grétars næsta sumar verður að...

- sjá um vökvun Dúddavallar
- hirða hann eftir þörfum
- sjá um merkingar á leikfangnum
- hafa umsjón yfir hornfánum og öðru slíku
- taka formlega á móti dómara við komu í hvern heimaleik
- og síðast en ekki síst að virkja aðra með sér til ofangreindra verkefna

Ég vil fyrir hönd stjórnarinnar bjóða Grétar Frey velkominn til starfa.

Baldur Guðmundsson
Formaður