föstudagur, desember 17, 2004
Stór dagur í sögu Snartar!
Jæja þá er runninn upp stór dagur í sögu Snartar. DV, föstudaginn 17. des, er komið út og þvílík snilld. Þið bara verðið að sjá þetta. Þarna er um að ræða heilsíðufrétt um SNÖRT. Til að upplýsa aðeins um upphafið af þessu þá kemur þetta til vegna samnings sem við gerðum við JAKO (eða Namo í mosfellsbæ sem flytur inn JAKO). Við vildum kynna það og kynna í leiðinni samningsleiðina okkar við Atla og þetta er afraksturinn. HREIN SNILLD. Þetta hefði nú ekki verið hægt ef þeir hjá DV-sport hefðu ekki tekið svona vel í þetta, nánar tiltekið Henry Birgir, sem skrifaði þessa grein af þvílíkri snilld og sá greinilega miklu stærri frétt í þessu en við gerðum okkur grein fyrir í upphafi. Sannarlega magnaður blaðamaður þar á ferð. Hvetjum alla til að KAUPA DV í dag því þessi grein er, eins og sagt er, "it's a keeper"
Kveðja. Hnikarr.
Ps. 3 myndir af mér í blaðinu þannig að það er enn meiri ástæða að kaupa það!
fimmtudagur, desember 16, 2004
Takið eftir
Vegna gríðarlegs vaxandi þrýstings síðan ég skrifaði síðustu frétt þá vil ég gefa mönnum smá hint. Án þess að ég segi meira þá mælist ég til þess að allir leikmenn, áhangendur sem og velunnendur Snartar fjárfesti í DV á föstudaginn, þar verður ýmislegt skemmtilegt að finna.
Annars er ný heimasíða Snartar vel á veg komin á verður hún vonandi full kláruð fyrir föstudaginn. Slóðin á hana verður að sama skapi gefin upp þegar hún er komin "í loftið".
Kveðja,
Baldur
mánudagur, desember 13, 2004
Stór vika framundan
Ég vil vekja athygli manna á að stór vika er framundan hjá Snerti. Ný heimasíða félagsins verður opnuð á þriðjudag eða miðvikudag en sú vinnsla er í höndum vefstjóra okkar, Björgvins Óla Friðgeirssonar. Í kjölfar þess mun annar atburður koma upp á sjónarsviðið sem mun koma mörgum skemmtilega í opna skjöldu, en þeim atburði hefur verið flýtt um viku eða svo. Ekki er þó unnt að greina frá atburði þessum að svo stöddu, né heldur nákvæma dagsetningu. Í vikulokin munum við svo eignast fótboltamörk í fullri stærð fyrir tilstilli Hjörvars, en eins og alþjóð veit þá verður hann tattúeraður í beinni á Skjá einum næstkomandi sunnudag. Það er því stór vika framundan fyrir Snartarmenn nær og fjær.
Kveðja,
Formaðurinn