mánudagur, desember 13, 2004

Stór vika framundan

Ég vil vekja athygli manna á að stór vika er framundan hjá Snerti. Ný heimasíða félagsins verður opnuð á þriðjudag eða miðvikudag en sú vinnsla er í höndum vefstjóra okkar, Björgvins Óla Friðgeirssonar. Í kjölfar þess mun annar atburður koma upp á sjónarsviðið sem mun koma mörgum skemmtilega í opna skjöldu, en þeim atburði hefur verið flýtt um viku eða svo. Ekki er þó unnt að greina frá atburði þessum að svo stöddu, né heldur nákvæma dagsetningu. Í vikulokin munum við svo eignast fótboltamörk í fullri stærð fyrir tilstilli Hjörvars, en eins og alþjóð veit þá verður hann tattúeraður í beinni á Skjá einum næstkomandi sunnudag. Það er því stór vika framundan fyrir Snartarmenn nær og fjær.

Kveðja,
Formaðurinn