miðvikudagur, desember 08, 2004

Það sem er á döfinni

Jæja drengir, það er nú ýmislegt á döfinni hjá okkur nú í desember. Svo ég tali fyrir sjálfan mig þá ætla ég að fylgja Hjörvari alla leið í Bingóinu þann 19.des. Ég mun líka færa honum treyjuna sína nr. 7 því hann ætlar að skarta henni þegar stróra stundin rennur upp. Annars höfum við ýmislegt í hyggju. Það er óhætt að segja að stórir hlutir séu framundan. Við höfum í hyggju að gefa út dagatal í byrjun árs og það krefst töluverðrar vinnu. Einnig stefnum við á að halda þorrablótið heima í febrúar, annaðhvort í samstarfi við Skotfélagið eða bara sjálfir. Það er óþarfi að taka fram að þorrablótshald er ægileg vinna, og vonandi eru menn tilbúnir að hjálpa til þegar á hólminn er komið. Það er ekki komið endanlega á hreint en það er nokkuð öruggt að við komum til að taka stóran þátt í því. Þá þurfa menn að vera tilbúnir að sprella eitthvað!

Svo er annað sem stendur til sem að kemur til með að vekja gríðarlega lukku og athygli í kjölfarið á Bingóinu, líklega í vikunni þar á eftir. Ég vil ekki gefa út hvað það er nákvæmlega en ég get lofað því að eftir því verður tekið víðsvegar í þjóðfélaginu. Við verðum örugglega á allra vörum. Það er meðal annars ástæða suðurferðar minnar aðra helgi.

Annars vona ég að menn verði duglegir að hittast um jólin og spila fótbolta. Maður er farinn að hlakka til að spila með ykkur heima. Það er alltaf jafn gaman.

-Baldur Guðmundsson.