sunnudagur, desember 19, 2004

Ný vefsíða!

Fyrir hönd Snartar vilja bjóða ykkur velkomin á þessa splunkunýju heimasíðu okkar. Hingað til höfum við haldið til á blog.centrals.is/snortur en höfum nú tekið skrefið fram á við og búið til okkar eigin heimasíðu. Þetta ku vera í samræmi við aukin metnað félagsins á öllum sviðum. Með síðunni vonumst við til að geta fært stuðningmönnum okkar um allan heim nýjustu fréttir af gengi okkar, vangaveltum og markmiðum. Á henni verður hægt að finna margvíslegan fróðleik um fjölmargt sem snertir leikmenn liðsins, árangur og framtíðaráform. Við vonum að stuðningsmenn okkar og velunnendur taki virkan þátt í umræðum hér á síðunni, verði duglegir að skrifa í gestabókina og hvetja okkur áfram á einn eða annan hátt. Slíkur stuðningur er okkur ómetanlegur. Vonandi komið þið, lesendur góðir, til með að hafa jafn gaman að þessu ævintýri og við sjálfir.
Lifi Snörtur!

Fyrir hönd stjórnar og leikmanna,
Baldur Guðmundsson formaður knattspyrnudeildar Snartar, Kópaskeri.


Vefstjóri þakkar formanninum fyrir þessi góðu orð, og tekur undir varðandi metnað klúbbsins. En vefstjóri vill þó benda á að þessi síða, sem þið sjáið núna, er aðeins bráðabirgðasíða - stærri og flottari síða mun án efa rísa fyrir sumarið! Stefnan er sett á ítarlega umfjöllun um leikmenn, helstu stuðningsmenn, leiki félagsins og einnig að setja upp spjallborð fyrir alla til að taka þátt á. Þessi síða var sett upp í snarhasti vegna aukinnar umfjöllunar um félagið og ýmsar uppákomur í fjölmiðlum tengdum honum. Við vonum bara að þið kunnið að meta þetta og sýnið okkur þolinmæði ef að tæknilegir örðugleikar eiga sér stað fyrstu dagana.

Við viljum þakka Þristarmönnum fyrir að hýsa okkur tímabundið, eðalgaurar.

Björgvin Óli Friðgeirsson,
Vefstjóri.