laugardagur, desember 11, 2004

Deildarbikarinn

Eins og alþjóð veit erum við, Snörtur skráðir til leik í deildarbikarkeppni KSÍ í fyrsta skipti í ár. Nú er riðlaskipting í mótinu tilbúin en enn er unnið að niðurröðum svo ekki er enn ljóst hvenær leikirnir fara fram.
Snörtur leikur í fyrsta riðli C-deildar og lítur riðillinn þannig út:

Reynir
Höttur
Snörtur
Magni
LeiknirF


Leikin verður einföld umferð og sigurvegarar riðlanna leika til úrslita. Drög að niðurröðun verða birt á næstu dögum og verða þau sett hér inn á síðuna um leið og þau liggja fyrir. Ef þetta verður eins það lítur út fyrir, þá munum við enn og aftur etja kappi við góðkunningja okkar frá Grenivík + Halldór Svavar. Einnig höfum við átt eftirminnilegar rimmur við Reyni. Gaman verður þó líka að etja kappi við lið sem við höfum ekki leikið gegn áður.

Gaman væri að fá viðbrögð manna við þessum tíðindum, hverjar eru væntingarnar? Tökum þetta strákar !!!!!!!!!

-Baldur Guðmundsson.