fimmtudagur, maí 26, 2005
Fréttabréfi dreift um sveitir
Fyrsti heimaleikur Snartar í Íslandsmótinu í knattspyrnu fer fram n.k. laugardag (28.maí) klukkan 14:00 en þá kemur Höttur frá Egilsstöðum í heimsókn.
Þriðjudaginn 31.maí fer svo fram leikur Snartar og Leifturs/Dalvíkur í annarri umferð VISA-bikarsins því Snörtur lagði lið Boltafélags Húsavíkur 3-1 í fyrstu umferð. Leiftur/Dalvík leikur í 2.deild þannig að við þurfum á öllum mögulegum stuðningi að halda.
Við hvetjum fólk til að mæta á leikina í sumar og styðja við bakið á okkur og skemmta sér í leiðinni.
Að sjálfsögðu er frítt á alla leiki og það væri gaman að sjá sem flesta á Dúddanum í sumar. Aðrir heimaleikir sumarsins verða sem hér segir:
Fim.16.júní: Snörtur ? Reynir Árskógsströnd
Fim. 7.júlí: Snörtur ? Magni Grenivík
Lau. 16. júlí: Snörtur ? Leiknir Fáskrúðsfirði
Fim 21.júlí: Snörtur ? Boltafélag Húsavíkur
Lau. 13.ágúst: Snörtur ? Neisti Djúpavogi
föstudagur, apríl 01, 2005
Þjárfarinn með gylliboð í höndunum!
Atli Sveinn, sem tekið hafði að sér þjálfun liðsins í sumar, gæti verið á leiðinni burt frá félaginu aftur. Hann hefur fengið boð um að fara út til Manchester í sumar og starfa í 2 mánuði í unglingaþjálfun hjá Man.Utd. og ef þeim lýst á hann gæti hann jafnvel fengið boð um að vera lengur. Eins og margir vita þá er Man.Utd. þekktir fyrir að bjóða til sín ungum og efnilegum þjálfaraefnum sem gera það jafnan gott hjá þeim. Þannig var t.d. með Steve McLaren sem nú þjálfar Middlesboro en hann byrjaði ungur að þjálfa hjá Utd.
Þetta eru frábærar fréttir fyrir Atla og ætlar Snörtur ekki að standa í vegi fyrir því ef hann ákveður að fara. Búið er að tala við Jóa með að taka við þjálfuninni ásamt Jónasi ef Atli verður frá að hverfa.
Atli mun þó stýra liðinu í fyrsta leik deildarbikarsins þar sem hann mun tilkynna liðinu um endanlega ákvörðun sína.
Meira af þessu máli seinna.
Kv. Hnikarr
föstudagur, mars 18, 2005
Nýir leikmenn skoðaðir
Ný er farið að styttast verulega í fyrsta leik í deildarbikar. Snörtur mun nota þessa leiki til að prófa m.a. nýja leikmenn sem lýst hafa yfir áhuga á að spila með liðinu í sumar. Áhugasamir munu eflaust verða varir við mikið af félagaskiptum yfir í Snört núna í kringum páskana en það er alls ekkert víst að allir þeir leikmenn muni koma til með að leika með liðinu í sumar. Það er í höndum þjálfarans að velja úr þessum mönnum og nota þá sem hann vill nota. Stjórnin mun þó fylgjast grant með málinu og taka inní ef þeim þykir ástæða til :)
En það verður gaman að sjá hvað þjálfarinn mun gera með liðið í þessum leikjum. Mun hann fara í einhverja tilraunastarfsemi og prófa mismunandi kerfi, leggja ofuráherslu á föst leikatriði, keyra upp hraðann og pressa stíft eða verður bara lagt upp með að leika léttleikandi og skemmtilega knattspyrnu. Þetta allt saman kemur nú fljótlega í ljós. En þangað til, bless í bili.
Kv. Hnikarr
fimmtudagur, febrúar 24, 2005
Snartarmaður að gera það gott
Ég vil fyrir hönd stjórnarnnar óska Hjalta til hamingju með að vera kominn í byrjunarliðið hjá KA. Hjalti hefur verið meiddur upp á síðkastið en er nú óðum að ná sér og er búinn að vera í byrjunarliði KA í síðustu tveimur leikjum; á móti Keflavík og Þór. Ég fór og fylgdist með honum á móti Keflavík um síðustu helgi og af frammistöðu hans er ljóst að hann á vel heima í þessu liði og þessari deild. Þess má geta að Hjalti skoraði eins og menn muna eitt mark fyrir KA gegn Leiftri Dalvík á dögunum.

Sjáiði kallinn
Að sjálfsögðu vonum við að honum gangi sem best og nái að festa sig í sessi með KA í sumar. Hver veit nema hann fari eitthvað erlendis að spila í framtíðinni, hann allavega hefur allt til þess að bera.
Kv. Baldur
mánudagur, febrúar 21, 2005
Æfingaprógrammið í 7. og 8. viku
Verð að viðurkenna mín mistök, ég gleymdi að senda inn síðustu helgi hlaupaprógrammið!!! En ég er búinn að breyta dagsetningum þannig að þetta kemur sér vel upp á æfingahelgina!
Hér er prógrammið!!!
Vika 7 og 8.
Æfing 1:
Hlaup á jöfnum hraða í 40 - 60 mín.
Æfing 2:
Rólegt skokk í 10 mín, síðan skiptast á álagskaflar og rólegt skokk, þannig; 3 mín álag, 6 mín rólegt skokk (má vera ganga að hluta) endurtekið þrisvar sinnum. Síðan má auka það í fjórar endurtekningar (jafnvel 5).
Aukalega eins og í fyrri vikum þá eru það 100 kviðæfingar, 50 armbeygjur, 30 bakfettur og 40 magahopp(hoppa jafnfætis með hnén upp að bringu) sem þarf að gera eftir hvert útihlaup!!!!
Vika 7: Æfingar þriðjud og fimmtud. (22. og 24. feb)
Vika 8: Æfingar þriðjud og fimmtud. (1. og 4. mars)
Kv. Atli Coach
Æfingarleikur við Reyni Á.
Það voru fjórir Snartarmenn sem hófu leikinn gegn Reyni á miðvikudagskvöldið. Hinir voru Hamrar í húð og hár og margir vel sprækir eins og við Snartarmenn munum frá því í fyrra. Það var jafnræði með liðunum fyrstu mínúturnar en við Hamrar skoruðum eftir um 7 mínútur. Eftir það var leikurinn einstefna. Í hálfleik var staðan 4-0 en þá skiptu Reynismenn mörgum leikmönnum inná. Póstar eins og Þórir Áskells og Villi voru þó hafðir áfram inná. Ekki batnaði leikur þeirra við skiptingarnar og þegar uppi var staðið, eftir 90 mínútna leik, var staðan orðin 10-0 Hömrum í vil. (Boltinn minn stóð fyrir sínu, sannkallaður happabolti) Gunni skoraði 6 mörk, Egill 2 og Árni 1. Ég verð að segja að Reynismenn komu mér mjög á óvart, en ég bjóst við þeim mun sterkari. Þeir áttu þó 3-4 ágætis færi en brást bogalistin í öllum þeirra. Heiddi stóð sig líka mjög vel í markinu og varði 2-3 mjög vel en annars reyndi lítið á hann í fyllilega verðskulduðum sigri okkar.
Eiki kom gríðarlega vel út á miðjunni og var að öðrum ólöstuðum umtalaður maður leiksins. Gríðarleg yfirferð á stráknum. Frikki bjó til helling á kantinum og Jónsi var sem klettur í vörninni að vanda og steig vart feilspor.. Annars voru allir að spila vel eins og tölurnar segja til um. Jónsi og Arnór náðu ótrúlega vel saman í vörninni og eins Gunni og Egill frammi. Ég spilaði í hægri bakverði og fann mig ágætlega þangað til ég tognaði lítillega aftan í hægri hnéspótarsininni. Gat hlaupið en það var sárt þannig að ég skipti mér útaf eftir um 35 mínútna leik. Ekki ánægður með það því ég blés ekki úr nös en ætla þó að hvíla mig fram yfir helgi svo að þetta versni ekki.
Verð að segja að miðað við frammistöðu okkar leikmanna í kvöld eigum við von á góðu sumri. Ég held þó að Reynismenn munu gyrða sig í brók eftir þetta og vonandi ná þeir að hrista sig saman þegar líður nær vorinu. Þeir eiga vel að geta það.
Kv. Baldur
fimmtudagur, febrúar 10, 2005
Æfingaleikur
Kíkti á æfingaleik í gær á milli Magna og Reynis. Leikurinn sem var 75 mínútur var í járnum lengst um þrátt fyrir að bæði lið fengju 2-3 mjög góð færi. Þess ber að geta að Magnamenn voru með um 3 skiptimenn en Reynir skipti 9 mönnum inná. Það tók sinn toll og endaði leikurinn með 3-0 sanngjörnum sigri Magna. Í hópinn hjá þeim vantar marga menn sem eru fyrir sunnan í námi. Það er því ljóst að þeir verða með hörkulið að vanda. Sá líka mikil batamerki á Reynismönnum frá því síðasta sumar. Greinilegt að nýji þjálfarinn hjá þeim er að gera góða hluti.
Annars gætu orðið miklar hræringar í riðlaskiptingunni í deildinni en ég mun flytja ykkur þær fréttir um leið og þær verða staðfestar.
Kveðja,
Baldur
mánudagur, febrúar 07, 2005
Æfingaleikur
Eins og fram hefur komið ætlum við að fylgjast náið með æfingaleikjum annara liða er okkur varða hér á síðunni.
Magni og Völsungur öttu kappi í gær og höfðu Völsungar 2-1 sigur. Að sögn dómara leiksins voru Völsungarnir töluvert betri allan tímann og misnotuðu þeir m.a. vítaspyrnu.
Rétt er að taka fram að Völsungarnir léku án Zorans þjálfara og helmingsins af hópnum, en fjölmargir leikmenn félagsins æfa undir hans stjórn fyrir sunnan. Einnig er rétt að taka fram að Magna menn léku án síns öflugasta manns, Halldórs Svavars en hann er sem kunnugt er sunnan heiða.
Næsti markverði æfingaleikur verður milli Reynis og Magna næsta miðvikudag klukkan 22:00 og mun ég reyna að mæta á þann leik til að njósna.
Kv. Baldur